Fréttir og tilkynningar

20. nóvember 2009 :

Hver fær 75 milljónir 29. desember?

Nú styttist óðum í stærsta vinning í sögu Happdrættisins. Í stað hefðbundins Milljónaútdráttar, þar sem dregnir eru út 10 einnar milljónar króna vinningar, verður 29. desember  dreginn út sannkallaður risavinningur á einn miða – 75 milljónir króna! Aðeins verður dregið úr seldum miðum og því þarf enginn að velkjast í vafa um hvort vinningurinn gengur út eða ekki.

Því er ekki að neita að þeir sem hafa endurnýjað miðann sinn allt árið hafa töluvert meiri möguleika á vinningnum, því að fyrir hvert skipti sem miði er endurnýjaður fer hann í sérstakan pott sem dregið er  úr í lok ársins. Sá sem á einfaldan miða fer því 12 sinnum í pottinn hafi hann endurnýjað allt árið, en sá sem á Tromp-miða fer 60 sinnum í pottinn!

Þrátt fyrir þetta er ekki of seint að vera með – einn miði í desember er allt sem þarf!

Til baka, Prenta greinina

 



Útlit síðu:

Neðri síðuvalmynd