HHÍ

Starfsemi Happdrættis Háskóla Íslands

Happdrætti Háskóla Íslands (HHÍ) er alfarið í eigu Háskóla Íslands og rekið með það að markmiði að afla fjár til byggingaframkvæmda og tækjakaupa fyrir Háskólann.

Allt frá stofnun happdrættisins árið 1933, hefur það fjármagnað nær allar byggingar Háskóla Íslands. Húsnæði og tæki Háskólans eru því ekki keypt fyrir skattfé almennings, heldur að lang stærstum hluta fyrir framlög HHÍ.

HHÍ rekur þrjú happdrættisform: Flokkahappdrætti, skafmiðahappdrætti og skjávélahappdrætti.



Til baka, Prenta greinina

 

Fréttir og tilkynningar

18. ágúst 2010 :Nýr ritstjóri hjá Vísindavefnum

Jón Gunnar Þorsteinsson var á dögunum ráðinn nýr aðalritstjóri Vísindavefsins, en hann tekur við af prófessor Þorsteini Vilhjálmssyni sem hættir störfum vegna aldurs. Jón hefur starfað undanfarin ár sem verkefnastjóri hjá Vísindavefnum við hlið Þorsteins.Lesa meira
 

21. júní 2010 :Happdrættið styrkir afburðanemendur

Á dögunum voru veittir tólf styrkir til afburðanemenda sem hefja nám í Háskóla Íslands næsta haust. Um er að ræða styrki til nemenda sem náð hafa framúrskarandi árangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands. Hver styrkur nemur 300.000 krónum auk niðurfellingar skráningargjalds, sem er 45.Lesa meira

 

Næstu útdrættir

10. sep. 2010

24. sep. 2010

12. okt. 2010

Milljónamælirinn

Útgreiddir vinningar á árinu eru...

584.675.000 kr.


Útlit síðu:

Neðri síðuvalmynd