Nokkrar algengar spurningar sem okkur hafa borist:
Hvernig eignast ég miða?
-
Fljótlegast er að nota kaupkerfi HHÍ efst til hægri hér á síðunni. Einnig er hægt að hringja í síma 800-6611 eða 563-8300 á skrifstofutíma. Svo er líka hægt að heimsækja einn fjölmargra
umboðsmanna okkar um allt land og kaupa miða hjá þeim.
Hvernig vel ég númer?
-
Einfaldast er að láta leitarvélina í kaupferlinu efst til hægri hér á síðunni aðstoða sig við leit að númeri eða hafa samband við
umboðsmann okkar og fá aðstoð.
-
Auk þess að vera númeraður, er hver miði auðkenndur með bókstaf; B, E, F, G og H. Hvert númer hefur einn trompmiða sem auðkenndur er með bókstafnum B. Trompmiðar hafa fimmfalt gildi. Hinir bókstafirnir eru einfaldir miðar. Ekki skiptir máli hver þessara bókstafa er valinn, þar sem allir miðar með sama númeri fá vinning ef númerið er dregið út í Aðalútdrætti. Þegar dregið er í Milljónaútdrætti er hins vegar einungis dregið úr seldum miðum og bæði dregið út númer og bókstafur.
Hvað kostar miði?
Hvað er trompmiði?
-
Trompmiðar eru auðkenndir með bókstafnum B, t.d. 32695-B.
-
Í Aðalútdráttum hefur trompmiði fimmfalt gildi á móti einföldum. Vinningur sem dreginn er út á trompmiða fimmfaldar vinningsupphæðina. Útdreginn vinningur sem er kr. 5.000 verður kr. 25.000 á trompmiða og 5.000.000 verða 25.000.000!
-
Í Milljónaútdrætti er dregið um 10 vinninga að fjárhæð kr. 1.000.000 hver. Í þeim útdrætti hækkar vinningsupphæðin ekki, heldur aukast möguleikar eiganda trompmiðans til vinnings með því að hver seldur trompmiði er fimmfaldur í pottinum sem dregið er úr.
-
Endurnýjun trompmiðans er, eins og vinningarnir, fimmföld á mánuði eða kr. 5.000.
Hvað er Aðalútdráttur?
Hvað er Milljónaútdráttur?
-
Milljónaútdrátturinn fer fram tveimur vikum eftir Aðalútdrátt. Oftast eru dregnir út 10 einnar milljónar krónu vinningar en stundum eru þeir þó fleiri, það fer eftir vinningaskrá. Einungis er dregið úr seldum miðum í þessum útdrætti. Þannig er tryggt að hver einasta milljón fer til heppins miðaeiganda.
Hvenær er dregið?
Eru margir miðar með sama númeri?
-
Fimm miðar eru gefnir út með sama númeri. Miðarnir hafa þó ekki alveg sama númerið þar sem þeir eru aðgreindir með bókstöfunum B, E, F, G og H.
-
Númer með bókstafnum B er svokallaður trompmiði. Trompmiðar hafa fimmfalt gildi á við hina miðana. Það eru einfaldir miðar. Ekki skiptir máli hver þessara bókstafa er við miðanúmerið sem dregið er út þar sem hver og einn þessara miða fær vinning ef númerið er dregið út í Aðalútdrætti. Þegar dregið er í Milljónaútdrætti er einungis dregið úr seldum miðum og þá er dregið út bæði númer og bókstafur.
Hverjar eru vinningslíkurnar?
-
Í reglugerð um HHÍ er sagt til um að vinningshlutfallið skuli vera 70%. Það þýðir að af 1.000 krónu endurnýjun hvers miða fara 700 aftur út til miðaeigenda sem vinningar.
-
Fjöldi vinninga er líka mikill. Þess vegna er hægt að segja að u.þ.b. annar hver miði fái vinning!
-
HHÍ á enga miða sjálft og greiðir því 70% tekna sinna til heppinna miðaeigenda árlega.
Hvað með skattinn?
-
Vinningar HHÍ eru skattfrjálsir.
-
Þetta þýðir að ef þú færð 5.000.000 í vinning – þá færðu 5.000.000 í vinning! Happdrætti Háskólans sendir hvorki skattyfirvöldum né öðrum aðilum upplýsingar um vinninga.
Hver fær að vita af vinningum?
-
Vinningshafinn fær að vita um vinninginn – enginn annar.
-
HHÍ leggur mikið upp úr trúnaði við viðskiptavini sína. Það er vinningshöfum því í sjálfsvald sett hvort þeir segja einhverjum af heppni sinni eða ekki.
Hvernig veit ég hvort ég vann?
Ýmsar leiðir eru til þess að sjá hvaða númer fengu vinning. Þær eru helst þessar:
-
Vinningaskráin birtist fljótlega eftir útdrátt á vefnum okkar.
-
Vinningaskráin er birt í Morgunblaðinu daginn eftir útdrátt.
-
Fjótlega eftir útdrátt er hægt að slá inn miðanúmerið og láta vefinn leita í vinningaskránni.
-
Með skráningu á ”Mínar síður” er hægt að fá sent sms og/eða tölvupóst þegar vinningaskráin er komin á netið, þegar vinningur kemur á miðann þinn eða með númerinu sem fékk hæsta vinning mánaðarins.
-
Þeim sem ekki hafa sótt vinninga tveimur vikum eftir útdrátt er send tilkynning í pósti.
-
Síðast en ekki síst er hægt að hringja í HHÍ og umboðsmenn þess um allt land og leita upplýsinga.
Hvernig fæ ég vinning greiddan?
Til baka,
Prenta greinina