Flokkahappdrætti

Hver er draumurinn þinn?

Öll eigum við okkur drauma. Suma langar í heimsreisu, aðra dreymir um hraðskreiðan sportbíl á meðan enn aðrir þrá að eignast sumarbústað með heitum potti, ryðfríu grilli og öllu hinu. Svo eru hinir sem vilja einfaldlega minnka við sig í vinnu eða gera betur við börnin og barnabörnin.

Með vinningi í Happdrætti Háskóla Íslands getur þú látið draum þinn rætast. Í hverjum mánuði eru greiddir út vinningar að meðaltali að fjárhæð tæplega 70 milljónir króna - skattfrjálst, í beinhörðum peningum. Á síðasta ári skiptu ríflega 33.000 vinningshafar með sér um 800 milljónum króna.

Happdrættið er einfaldur leikur með mikla vinningsmöguleika. Til þess að vera með færðu þér einfaldlega miða með númeri á bilinu 1 til 60.000. Tvisvar í mánuði er síðan dregið um mikinn fjölda vinninga.

Vertu með - freistaðu gæfunnar og styrktu um leið Háskóla Íslands, háskóla allra Íslendinga.

Til baka, Prenta greinina

 

Næstu útdrættir

24. mar. 2010

13. apr. 2010

27. apr. 2010

Milljónamælirinn

Útgreiddir vinningar á árinu eru...

196.135.000 kr.


Útlit síðu:

Neðri síðuvalmynd